Aníta

03.11.2007 16:50:21 / Aníta

Bææ

 

Ég hef ákveðið að byrja blogga aftur.. geggjað gaman fyrir ykkur. Ætla samt að færa mig yfir á bloggar.is þar sem ég er orðin mjög þreytt á þessu central fokking kjaftæði! Nýja síðan er anitalisa.bloggar.is ótrúlega fínt!

Við sjáumst heil á hinni síðunni !!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

31.08.2007 15:42:04 / Aníta

myndir..

 

Er búin að setja inn myndir frá þjóðhátíð hérna í aðalvalmynd.. betra seint en aldrei ;)

jht07088-1.jpg picture by anita_lisa


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 17:31:58 / Aníta

lamaður í alkóhóli landinn gefur tóninn

 

Hæ.

Ég fór á þjóðhátíð um verslunarmannahelgina, það er bara eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert. Ég fór með Báru, Mjöll, Beggu, Maríu, Bryndísi og Önnu Maríu og það var svo gaman hjá okkur að það er ekki einu sinni hægt að útskýra það í orðum. Er klárlega að fara á þjóðhátíð næstu árin!!! Myndirnar koma bara bráðum..

Fór á föstudaginn og náði í stundatöfluna mína í FB, alveg ágætis stundatafla.. hef lítið að kvarta yfir nema miðvikudögunum, þá er ég stanslaust í skólanum frá 8:15 til 5:45. Það er soldið mikið.. en ég get verið sátt með þriðjudagana og föstudagana, þá fer ég bara í tvo tíma yfir daginn og er því bara í skólanum frá 9:55 til 12:45. Það er klassi!!

Ég var að fá bíl fyrir ykkur sem ekki vita. Ef þið sjáið fallega silfurlitaða bjöllu keyrandi um á skaganum þá megiði alveg heilsa mér, af því það er ég :haha:

Vann síðasta vinnudaginn minn í sumarvinnunnu á lau, var semsagt að hætta á sjúkrahúsinu og ef ég á að segja eins og er þá var það mjög góð tilfinning. Aldrei aftur að vakna kl hálf 7 til að fara vinna! Annars var þetta fín vinna og ég sé ekkert eftir því að hafa unnið þarna. Ætla mér að vinna í bonusvideo í vetur þó svo að ég sé í skóla í bænum, tými ekki alveg að fara algjörlega frá akranesi. Sé samt til hvernig þetta fer þar sem Hrefna er að fara yfirgefa mig úr þessari blessuðu vinnu, ætlar að skilja mig eftir eina með þriðjudagskvöldin.. glaaaaatað. Ætli ég verði ekki að viðurkenna að ég eigi eftir að sakna hennar smá mikið ;)

Fótboltinn gengur bara ljómandi vel ef ég á að segja eins og er. Við í 2.fl erum að standa okkur, vantar bara oggupínu upp á að vera í fyrsta sæti og það hefur sjaldan verið jafn gaman að keppa og nú. Erum að vinna leikina 5-0, 6-1 og svona tölur..

Ég fór í mína fyrstu ferð upp í sveit til Bryndísar á þarsíðustu helgi. Ákváðum ég, Bryndís og Begga að taka roadtrip á nýja bílnum og gista yfir nóttina. Ég vissi svo ekki að það væri svona gaman að vera í sveit.. maður þarf ekki að gera neitt nema slappa af og hafa það kósý. Enda stefnum við á að kíkja aftur núna á fös og vera þá alla helgina, get ei beðið =)

 

En ætla ekki að hafa þetta lengra.. later ;*

 

Np; Ragnhildur Gísladóttir - Hvað um mig og þig?

 

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 00:37:31 / Aníta

'Cause even if we can't be together.. we'll be friends now and forever

 

Uuu jáá, soldið langt síðan síðast.. en hæ !

Ég er semsagt komin heim frá DK ef þið voruð að spá í því þar sem ég er ekkert búin að blogga áður en ég fór út. Þessi ferð var náttla best í heimi og við rústuðum þessu dönsku liðum. Veit eigilega ekki afhverju ég er að blogga þar sem ég var eigilega búin að ákveða að ég nennti ekki að vera með þessa síðu.

 

Er að fara í FB í haust á íþróttabraut og ætla að búa hjá pabba í reykjavíkinni

 

Er að fara á þjóðhátíð um verslunarmannahelgina

 

Er ekki búin að gera rassgat í sumar nema æfa fótbolta og vinna eins og hálviti

 

Þarna fáiði það.. líf mitt í hnotuskurn :)

 

"When you're safe inside your room
  you tend to dream of a place where
  nothing's harder than it seems."

                                                                                                          "It's so hard to stand your ground
                                                                                                            when you're so afraid no one 
                                                                                                            reaches out a hand for you to hold."

Jáá gleymdi að það eru komnar myndir frá írskum dögum og danmerkur ferðinni inn á myspace-ið mitt.. myspace.com/anita_lisa , ég nenni ekki að setja þær líka hérna inn.

Get ekki meir, blee ;*

Np;  Hanson - I will come yo you
  


» 5 hafa sagt sína skoðun

25.05.2007 03:18:14 / Aníta

Wipe that tear away now from your eye

 

Jeg skal gor til Denmark i morgen med mit fodboldhold Valur.. rétt skrifað? Allavega þá er ég að fara til Danmerkur með 2.fl kvk Val á morgun, hlakka alveg endalaust til þar sem að það er skemmtilegast í heimi í svona æfingaferðum. Komum ekki heim fyrr en 3.júní sem þýðir að við erum í rúma viku, eigum einmitt líka fyrsta leikinn okkar í íslandsmótinu 3.júní við KR þannig það er allt að gerast:D

Er svo ekki að meika að fara sofa núna, er búin að vera pakka í allt kvöld. Fór reyndar á æfingu frá hálf 10 til 11 í egils og ég á svo erfitt með að ná mér niður eftir æfingu að ég verð helst að vera vakandi til 4 bara.. gott það !

Var svo ótrúlega góð um helgina, eða það fannst mér allavega. Fór í bæinn með Báru á föstudagskvöldið og var EDRÚ á bíl takk fyrir takk.. á laugardagskvöldið tókum ég og Bára okkur bara til og fórum á Goal 2. Shiiii hvað hún er góð, var með gæsahúð eigilega alla myndina.. skemmileggir ekki að allt Real Madrid liðið er líka berir að ofan og svona í henni *Mhhmmmm David Beckham* ;) Fór síðan og gisti hjá Mjallen og það var mjög gaman eins og alltaf.. haha !!

Er byrjuð að vinna á sjúkrahúsinu, er að skúra á fæðingardeildinni. Og ef það er ekki krúttlegast í heimi þá veit ég ekki hvað. Liggur við að mig langi að eignast krakka við að sjá öll nýfæddu börnin í litlu körfunni sinni með allt of stóra húfu á litla hausnum sínum. Aaawww dúlló.. haha ætla samt að róa mig aðeins, segjum frekar að mig hlakki til að verða eldri til að geta eignast krakka þá.. þurfið ekki að hafa neinar áhyggjur af mér:haha:

En jæja.. vildi bara aðeins láta vita af mér áður en ég færi út. Fáið að sjálfsögðu almennilega færslu plús helling af myndum þegar ég kem heim! Laaaater =*

Np; Oasis - Champagne Supernova

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 00:24:54 / Aníta

I just can't look it's killing me..

 

Jebb.. ég er komin með nýja færslu, alveg óvart kominn mánuður síðan ég gerði hina. Geri mér ekki grein fyrir tímanum sjáiði til. Alveg helling búið að ské á þessum mánuði held ég. Fór í uppskurð á hnénu til að fjarlægja skrúfuna sem var að bögga mig og var frá fótboltanum í tvær vikur. Er núna byrjuð aftur og það hefur sjaldan verið jafn gaman að fara á æfingar og núna. Náttla fáránlega skemmtilegar stelpur í þessu liði mínu og okkur hlakkar öllum til að fara til DK eftir 18 daga:)

Prófin eru byrjuð.. og mér finnst eigilega bara næs að vera í prófum. Maður er ekkert í skólanum og alveg að koma í sumarfrí og þarf bara aðeins að læra eitthvað smá fyrir hvert próf;) Er samt sem áður bara búin með 1 próf og það var eðlisfræði, biðjum til guðs um að ég nái því.. en þá eru bara 4 eftir og ég ætla mér að stúta þeim og ná 9 í öllu! Ég lofa.

Er ekki frá því að sé smá rjóð í kinnum eftir daginn í dag.. fór á æfingu kl 11 og það var bara sól og læti, var bara á stullum og bol og ég veit ekki hvað (var btw betra veður í rvk heldur en upp á skaga). Síðan fórum við að horfa á 3ja flokk verða Reykjavíkurmeistara og þá var sól ennþá þannig maður var bara að tana allan daginn. Ekki slæmt það8)

Er svo sátt með hvernig sumarið á eftir að verða held ég. Verð að vinna aðra hverja helgi í Bonusvideo og svo á hverjum virkum degi og reyndar aðra hverja helgi líka á sjúkrahúsinu, nema að ég er alltaf búin hálf 2 á virkum dögum þar þannig þá fer ég bara beint í bæinn og næ öllum fótboltaæfingum og það verður ekkert vesen eins og síðasta sumar. Er ótrúlega ánægð með það!!!

Síðustu daga hef ég mest megnis verið að hanga með Báru og Mjallen, kemur lítið á óvart. Svo var mér og Báru boðið í glæsilegan dinner í gær.. Hallur og Finnbogi voru geðveikt sætir í sér og elduðu fyrir okkur, var ekkert smá flott. Við bjuggumst svo ekki við einhverju svona glæsilegu, ótrúlega fínt alveg. Við borðuðum bara (fengum meira að segja eftirrétt og allt) og spjölluðum svo langt fram eftir nóttu.. geggjað kósý bara!:)

Vil svo benda ykkur á að 2.fl.kvenna hjá Val (semsagt ég) er að fara keppa í Reykjavíkurmótinu í Egilshöll á morgun Mánudaginn 7.maí á móti Þrótt kl 20:30.. veit að allir eru æstir í að koma og horfa á þannig endilega ekki vera hrædd við að mæta. Er þá aðallega að beina þessum orðum til vinkvenna minna sem hafa verið vinkonur mínar frá því ég man eftir mér en hafa sennilega aldrei séð mig né Báru spila fótboltaleik áður.. sem er náttúrulega til háborinnar skammar;)

l_d3c87ca407a9eaa7cdcfe36903876eb8.jpg

Ætla að enda þessa færslu á þessum glæsilegu orðum skrifuðum af Beckham sjálfum "Impossible is nothing" .. hljómar e-ð svo svakalega vel að maður neyðir sjálfan sig til að trúa þessu !

Laaaater - Aníta Lísa :*

Np;  The Killers - Mr. Brightside

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 16:05:21 / Aníta

We are what we don't see

 

Úff.. páskarnir bara búnir og skóli á morgun. Tíminn er svo fljótur að líða að ég fer bráðum að deyja. Finnst eins og jólin hafi verið í gær, og svo finnst mér eins og það sé svona klukkutími síðan ég hugsaði í síðustu viku hvað það væri næs að þurfa ekki að mæta í skólann fyrr en á morgun!

Páskadagur var fínn, fór að vinna og svo bara éta og síðan á ball. Ballið var bara mjög skemmtilegt, kom virkilega á óvart. Eftir ballið gistu ég og Eva Laufey heima hjá Ásgerði.. það var voða notalegt. Kúrðum allar þrjár upp í rúmi og spjölluðum, ég sá um að sækja mat upp í eldhús og varð valið gulrætur, ídýfa, maryland kex og þurrt brauð.. vissi ekki hvert stelpurnar ætluðu þegar ég kom með þetta;) Vöknuðum alveg heeel myglaðar daginn eftir og fórum að éta í skútunni með Báru, það var svoooo gott! Fórum svo í sund og um kvöldið kúrðum við heima hjá Evu með nammi, gerist ekki betra.

Er búin að setja hér inn myndir af páskaballinu og afmælinu hennar Jóhönnu í aðalvalmynd, með einsdæmum glæsilegar myndir.

Ásgerður fór heim í nótt, finnst svo stutt síðan hún kom og þá er hún bara farin aftur. Alltaf jafn gott að fá hana :*

Fótbolti er fyrsti tíminn minn í skólanum eftir páskafrí, gerist það betra? Svo er ég nú í fríi á fimmtudaginn í skólanum af því ég ferð í aðgerðina, alltaf hægt að horfa á björtu hliðarnar á öllu:)

TinyPic image

Váááá mig hlakkar svo til í næsta mánuði, allt að gerast. Prófin klárast, Bára, Eva Laufey og Lísbet eiga afmæli og ég fer til Danmerkur í æfingaferð með Val. Það verður vonandi jafn gaman í fyrra þar sem sú ferð var bara best í heimi!

Ætla ljúka þessu núna með mynd af sjálfri mér.. hversu skemmtilegt er það? Ég lofa að það er ekkert að mér, er bara smá spes...

eg

- Aníta :*

Np; Nelly Furtado - All good things (come to an end)


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.04.2007 18:23:59 / Aníta

There is nothing that we can do

 

Já ég held það bara, við getum öll verið sammála um að ég er viðbjóðslega óheppin og algjör aumingji. Er fötluð! Var að keppa á þriðjudaginn minn fyrsta leik ég veit ekki hvað lengi.. fer í tæklingu og það er hoppað í takkaskóm ofan á hendina á mér í staðinn. Hvað er það ? Hendin leit ekkert svo vel út, varð strax öll blá og marin og byrjaði að bólgna. Svo var líka blóð og svona á henni þannig þetta leit geðveikt hardcore út. Magga mín var svo góð að fara með mig á slysó og við tróðum okkur fremst í röð með setningunni "mig svimar svo.. er langt í þetta?". Hefðum annars þuft að bíða í klukkutíma. Ég hefði farið að grenja ef ég hefði verið handleggsbrotin þar sem ég er að fara í aðgerð í næstu viku til að láta taka skrúfuna í hnénu og ég hefði verið ennþá meira frá fótboltanum annars. Sem betur fer var þetta ekkert nema mar og bólga, ég þarf samt sem áður að lýta út eins og hálviti með teipaða putta og teygjusokk og ég veit ekki hvað. Ekki alveg að gera sig:haha:

 

 

Úff það er svo næs að vera í páskafríi.. er bara að njóta lífsins. Chilla með Ásgerði fyrst að hún er á landinu. Svo fór ég á línuskauta í fyrradag með bróðir mínum, tókum góðan hring og fórum svo upp í fjall með Valda á fjórhjólinu og ég var að taka Daníel upp á vídjó.. shitt hvað hann er töff;) Svo um kvöldið tók ég Fifa mót með Guðrún Selmu, Ölla, Dodda og Hauk. Vil ekkert vera monta mig en ég vann það.. skildi strákgreyin eftir með sálarlífið í rústi8) hehe..

 

Fór í gærkvöldi í afmæli til Jóhönnu, hún bauð okkur í mat og svona. Svo komu Bára, Mjöll og Guðrún og ég fór með þeim í bæinn og gisti bara hjá Mjöll útaf það var æfing í morgun. Svo eftir æfingu kíkti ég í Kringluna með Báru, Mjöll og Atla.. alveg hvað það er hægt að missa sig í þessari blessuðu kringlu, það eru freistingar allstaðar. Og fjármálin kannski ekki alveg upp á sitt besta þar sem það er æfingaferð í næsta mánuði og maður ætti eigilega að vera spara. En það stoppaði okkur ekki.. ónei8|

Ég og Báru vorum að horfa á Girl just wanna have fun.. æææðisleg mynd. Manni langar bara að dansa og vera geðveikt glaður á meðan maður er að horfa á hana. Haha =P

 

Er búin að vera þvílíkt dugleg að hrúa inn myndum á þessa síðu núna. Setti inn eeeld gamlar myndir frá lokaferðinni og óvissuferðinni í 10.bekk. Ég bara varð;) Svo er ég loksins búin að afreka að henda árshátíðarmyndunum inn.. betra er seint en aldrei. Ætla mér síðan að vera með myndavél á ballinu á morgun þannig eftir helgi má búast við myndum frá ballinu og afmælinu hennar Jóhönnu. Allt að ské!

 

En ég segji þetta þá gott í bili - Aníta ;*

 

Np; MIKA - Relax, take it easy


» 6 hafa sagt sína skoðun

30.03.2007 15:47:20 / Aníta

Maybe you started to compare to someone not there..

 

Vá ég fékk taugaáfall í gær.. kom heim um kvöldið og ætlaði að setja ipodinn minn í hleðslu þegar hann var bara frosinn á einhverju lagi og ekkert hægt að breyta eða ýta á neina takka. Ég ákvað að bíða í smá tíma og halda í vonina um að ég gæti hlustað á hann áður en ég færi að sofa. En síðan þegar ég ætlaði að fara sofa þá virkaði hann ekki heldur og mér leið bara illa, fannst eins og það vantaði eitthvað á mig. Skrýtið hvað einn hlutur getur skipt mann miklu máli.


Annars er ég byrjuð að mega fara á fótboltaæfingar núna. Er búin að fara á 3 í vikunni með strákunum hérna heima og fer á morgun í bænum með yndislegu Valsstelpunum mínum! Alveg hvað það er gaman í fótbolta, svo geðveikt að byrja aftur eftir svona langa pásu.. þó svo að skrúfan í hnénu sé geðveikt mikið að stríða mér núna með því að færa sig smátt og smátt út úr hnénu reyni ég samt. Fer til læknis á mánudaginn og þá er eins gott að ég losni við þetta helvíti. Gummi mörður klóraði mig á æfingu í morgun, bara segja ykkur hversu vondur hann er við mig.. er með stórt sár á hendinni;)

TinyPic image

Stefna á að geta þetta í enda sumarsins? Jeeeáh !

Er að fara þjóna á konukvöldi ÍA í kvöld, hlakka til að sjá hvernig það kemur út:haha:

Er komin í páskafrí.. það er svo ljúft að hugsa til þess að þurfa ekki að mæta í skólann á mánudaginn, og ekkert alla næstu viku. Ætli maður verði nú samt ekki að reyna vera duglegur og kíkja eitthvað í bækur fyrst það styttist líka óðum í þessu blessuðu próf:$

En ég hef það ekki lengra í bili, vildi bara henda einni léttri inn.

- Aníta =)

TinyPic image

ójá (btw Lísbet, mig langar í myndina mína;))

Np; The Fray - All at once


» 6 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 15:23:17 / Aníta

If I don’t say this now I will surely break

 

 

Ja hérna.. tíminn er svo geðveikt fljótur að líða. Helgin bara búin og önnur skólavika tekur við, það er samt allt í lagi þar sem að eftir þessa viku er komið páskafrí:) Hmm á þar síðustu helgi voru ég og Bára bara góðu stelpurnar og keyptum okkur geðveikt mikið nammi, doritos og ostasósu og spjölluðum ég veit ekki hvað lengi. Kíktum reyndar jú aðeins í afmælið hjá Hjalta og Halli og það var bara drama drama drama allt kvöldið. Við höndluðum það reyndar vel, enda alvöru dramadrottningar hér á ferð;)

 

Bára og ég með þarna hommalega gaurnum í afmælinu ;)

 

Síðasta vika var voðalega næs, einkennist samt af þreytu verð ég að segja. Halla stæ gaf frí í vikunni og Finnbogi gaf líka frí í eðlisfræðinni, þetta eru kennarar sem gefa aldrei frí í þannig ég var bara drullusátt með þau. Ég og Alexandra erum búnar að plana afmælisgjöfina sem við ætlum að gefa Báru og það verður svo ljúft, ætlum að hafa það í páskafríinu. Svo er ég líka búin að plana fara á Fedde Le Grande þegar hann kemur og svo jafnvel að maður skélli sér bara í bústað? Ætla allavega ekki að gera neitt í fríinu nema hafa það kósý.

Bjó til svona MySpace síðu, gekk ekki lengur að hafa enga. Fannst ég algjörlega útúr öllu og skildi aldrei neitt þegar fólk var að tala saman. Megið endilega kíkja á hana8) http://myspace.com/anita_lisa

 

Þessi helgi var ágæt alveg hreint, á föstudaginn var ég línuvörður hjá 3.fl.kvk Val. Ég og Mjöll erum klárlega flottasta línuvarðarpar á landinu. Svo um kvöldið kíkti ég á Sálina á Nasa, það var stuð. Í gær var bara rólegt bæjardjamm.. ekkert mikið hægt að segja frá því =)

Mynd númer 13

Hahah.. varð að hafa þessa með, frá Nasa á föstudeginum 9.mars. Darri alveg viðbjóðslega sætur, ég, Gaui og Kári :haha:

 

Held ég hafi þetta ekki lengra í bili, var að koma úr sundi með Báru og við ætlum sennilega á rúntinn í kvöld með Evu Laufey. Ekkert nema næs..


L8ter =*

 

 

Np; The Fray - Look after you

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 17:57:16 / Aníta

You don't even have to call, or check for me at all..

 

Jæja.. spurning um að henda einni færslu hérna inn þar sem ég hef ekkert betra að gera. Síðustu dagar hafa verið glimrandi, get ekki sagt annað. Á fimmtudaginn síðasta var árshátíð FVA.. maturinn góður, Bubbi leynigestur og allir ógeðslega sætir og fínir. Ballið með Pöpunum var síðan ágætt, ekkert meira en það.

Gústi og ég hjá Regínu á fimmtudaginn =) 

Föstudeginum var eitt í smávægis þynnku. En hún var nú ekkert það rosaleg að matur úr skútunni og appelsín gátu ekki lagað. Þannig ég hélt til rvk um kvöldið í partý á Glaumbar sem Darri og Annel voru með. Eftir það fór ég á Nasa og Sólon og ég verð að segja að þetta hafi verið eitt af mínu skemmtilegustu djömmum. Það var svo geeeðveikt:D

Haha Annel og ég að taka þátt í drykkjukeppni.. sem ég vann btw8)

Á Laugardaginn smakkaði ég síðan mesta þynnkuborgara sem finnst á Íslandi. Hef aldrei séð svona mikið magn af sósu og jukki á einum hamborgara.. hann var samt drullu góður þannig ég kvartaði ekki. Ungfrú Vesturland var síðan um kvöldið og ég fór á það ásamt fullt af Valsstelpum. Keppnin var ótrúlega flott í alla staði og hún Bára mín var voðalega sæt=* Eftir keppnina fór ég á ballið á Breiðinni.. fannst það ekkert spes. Engin hljómsveit og síðan var ballið bara allt í einu búið þegar manni fannst maður vera nýkominn. Fór þá í eitthvað skinku partý og síðan bara heim. Brjálað stuð alveg :)

Ætla kíkja í pottinn til Ylfu á eftir, ekkert betra en að slappa af eftir svona helgi! Hef þetta því ekki lengra..

Laaater =*

Np; Akon - Don't matter


» 8 hafa sagt sína skoðun

24.02.2007 17:47:25 / Aníta

Am I too dirty?

 

Nenni ekki að blogga, ætla bara að setja smá myndir.

 

 
Danmörk 2006 - sætar og sveittar ásamt enska krúttinu okkar Henry á fyrsta leik Eiðs Smára með Barcelona !
 
 
 
Baneitruð mynd ! Ég, Ásgerður, Lísbet, Freyja og Lára í Ölver einhvertíma í denn 8)
 
 
 
Svo æðisleg mynd.. haha ! Valdís, Ég, Thelma, Eva Laufey og Bára á pæjumótinu í Vestmanneyjum hérna áður fyrr þegar við vorum ennþá pæjur ;)
 
 
 
Haha hvernig er hægt að gleyma tjaldferðinni góðu árið 2004 eða eitthvað álíka.. þar sem Bára var vígð inn í hópinn á eftirminnilegan hátt :lol: - Lára, Ylfa, Ásgerður, Freyja, Bára, Lísbet og Ég.. Jóhanna var víst að taka myndina eins og vanalega.
 
 
 
Aww.. Ég, Arnþór og Ylfa að taka þátt í Samfés 2005. Shiiiit hvað það var gaman Ylfa, mannstu?;)
 
 
 
Og svo að lokum sú allra besta úr 10.bekk!
 
Hef þetta ekki lengra.. adios =*
 
Np; Mika - Grace Kelly
 
Ps: endilega kíkja á blog.central.is/raparinn - síða hjá Elvari frænda mínum, hann grátbað mig í gestabókinni að láta kíkja á þessa síðu! Valdís.. þú kíkir allavega;)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2007 00:55:32 / Aníta

I'm your slave and you're my master..

 

Þetta er alveg bara með þeim asnalegri og hlægilegri setningum sem ég hef heyrt í lagi! Minnir mig óendanlega mikið á Guðmund í byrginu eða eitthvað álíka.. samt sem áður bara Helgi Rafn sem á í hlut :)

Annars ákvað ég að henda færslu inn, varð eigilega þar sem ég var að setja myndir úr partýinu hjá Alla.  

Ætla að byrja á byrjun hvað varðar þessa helgi. Á föstudaginn rústaði stelpuliðið Wintercup riðlinum sínum, munum keppa til úrslita næsta föstudag. Alveg bara hvað það var gaman, þessir strákar búnir að koma með þvílíkar yfirlýsingar og svo tapa þeir bara. Við stórgræddum á því ég og Bára, partí og bjór8) Svo um kvöldið fór ég á Sander Kleinenberg á broadway, skemmti mér bara vel þar! Þurfti reyndar að fara á æfingu á Laugardeginum þannig ég var bara róleg. Svo um laugardagskvöldið var partý hjá Alla, VIP partýið mitt og Báru.. Geeeðveikt stuð! = )

Een úr einu í annað.. ég er búin að vera fkn geltandi í næstum 3 vikur núna. Er með lungnabólgu og var á einhverjum sýklalyfjum, bara fyrir ykkur sem voruð að spá hví ég væri svona.

haha ;)

 Ég nenni ekki að skrifa meir.. ætla koma mér í svefn!

Bonne nuit =*

Np; Helgi Rafn - Angela ( næ ekki þessu helv. lagi úr hausnum á mér þó svo að það sé ótrúlega leiðilegt8| )


» 10 hafa sagt sína skoðun

03.02.2007 01:15:16 / Aníta

This is not Miami..

Ja hérna.. má þetta? Vera bara heima á föstudagskvöldi og gera ekki neitt.

Allavega er ég að því og mér finnst það heví skrýtið. Kannski ástæðan fyrir því að ég komi með færslu! Fór á lokaball fva um daginn og er lítið hægt að segja um það nema að dj-arnir voru svo fokkin heitir að maður rann til á dansgólfinu. Eða svona næstum því. Veit allavega að Bára gerði það;)

Image hosting by TinyPic

Við stelpurnar erum komnar með lið á wintercup í skólanum. Eigum að keppa á föstudaginn eftir viku og það verður svo geðveikt að rústa öllum þessum gaurum sem halda að þeir séu geðveikt góðir! Hah svo verður feitt partí og frír bjór fyrir okkur stelpurnar.. geeeeðveikt;) Og ef mér skjátlast ekki er Sander Kleinenberg síðar um kvöldið þannig föstudagurinn verður bara skemmtilegur!

Var að laga um sjálfa mig áðan.. fór allt í fokk hjá mér. Var búin að vera sansa fáránlega mikið og flott í þessu og ætlaði síðan að stroka svona eina mynd út og ýtti á þarna strokuút takkann. En neinei strokaðist þá ekki allt út og ég þurfti að gera nýtt. Þar af leiðandi lagði ég ekki jafn mikinn metnað í það og hafði það eigilega eins, bætti þó við nokkrum myndum jú! Og talandi um myndir þá eru myndir af 26.jan ballinu hér til hliðar fyrir þá sem eru ekki búnir að skoða þær.

Ég og Freddie Ljungberg erum svo like this! Og ef þið hafið eitthvað út á hann að setja þá er betra að sleppa því. Ég verð geðveikt pisst og lem ykkur. Viljið ekki lenda í því.. manneskjan sem lenti í því um daginn hefur ekki getað sofið síðan ég barði hann svo harkalega:haha:

Lengra verður þetta ekki í bili.. vildi bára láta vita af mér!

Au revoir =*

Np; Sander Kleinenberg - This is New York

ȁÌ̎Ɛ㐰ϕlЀ┵

» 15 hafa sagt sína skoðun

17.01.2007 00:52:06 / Aníta

You gotta believe that I got what it takes to stand out..

Hey vá! Ég er aldrei búin að gera færslu á þessu ári.. gerði mér hreinlega ekki hrein fyrir því.

Áramótaheiti mitt þessa árs er að fara í slag. Bara af því að allir eru með einhver svona áramótaheit.. "ég ætla alltaf að fara geggjað snemma að sofa", "ætla byrja að borða hollt", "hreyfa mig reglulega" og blabla þá verð ég að koma með e-ð sem mig virkilega langar og get staðið við. Því það er ekki séns að maður sé að fara standa við það að borða hollt eða fara snemma að sofa allt árið!! Einn slagur yfir árið er miklu raunhæfara takmark þar sem ég hef aldrei á minni stuttu ævi lamið manneskju af einhverju viti. Er byrjuð að pumpa og svona til að undirbúa mig undir þetta, væri náttla lélegt ef ég myndi síðan tapa í þessum slag. Ástæðan líka fyrir þessu áramótaheiti er að það er alltaf litið á mig sem litla og ljóshærða stelpu sem getur ekki ýtt frá sér og þar er bara að fara breytast á þessu ári.. verð algjör trukkur8)

En nóg um það.. skólinn er byrjaður. Klöppum fyrir því! Eina sem ég hef um það að segja er að ég er í fótboltaáfanga með strákpjökkum og þeir mega fara vara sig miðað við áramótaheitið. Borgar sig ekki að bögga mig klukkan 8 á morgnanna inn í skítkaldri höll í fótbolta þó svo að ég sé stelpa, annars lendiru bara í því.

Aaaallt i lagi þá.. er hætt að vera hörð núna. María Rós og Begga Gná komu að heimsækja mig og Báru upp á skaga í gær. Fórum að éta saman og rúntuðum eins og skagamnönnum einum er lagið! Þær fóru hreinlega á kostum á Hróa með því að vera fyndnar og mun ég seint gleyma því þegar Gnása mín ætlaði að vera bensíntitturinn minn en mér tókst að klúðra því á ótrúlegan hátt;) Annars var yndi að fá þær því þær eru sko sætastar og skemmtilegastar í heimi =*

Það er samt soldið mikið búið að gerast síðan ég bloggaði síðast, veit engan veginn hvernig ég á að muna allt eða hvort ykkur langar að vita það. Hmm.. áramótaballið var allavega, fótboltinn byrjaður á fullu og örugglega fullt meira sem ég er að gleyma. Bára elskan er jú að fara í Ungfrú Vesturland.. finnst það æðislegt framtak hjá henni=)  Svo var þessi helgi líka soldið skrautleg.. allavega tókst mér að deyja næstum á oliver á laugardeginum eftir partý hjá Gauja frænda. Bara til hamingju með það Aníta!

Held samt að þetta sé komið gott í bili.. viljum ekki fá of mikið af því góða! Ætla drífa mig í að klára horfa á prison break seríu 1 þar sem ég stoppaði bara einhverstaðar í miðri seríu.. það gengur náttla ekki!

Wentworth Miller aka. Michael Scofield er náttla bara gorgeus!

En þangað til næst.. ég =*

Np; Disney - Stand out (Guffagrín)


» 16 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Leitarbox

Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti